veiðigjald.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson segir þetta vera gott frumvarp til að greiða hér atkvæði um. Það er einmitt heila málið; það er það ekki. Hins vegar höfum við klárað a.m.k. 14 önnur mál eftir að 2. umræða hófst um veiðigjöldin með því að þau voru einfaldlega sett á dagskrá. Ekki af því að þetta voru svo frábær mál sem við vorum ekki bullandi ósammála um heldur af því að þar voru ekki viðhöfð forkastanleg vinnubrögð. Og út af orðum hv. stjórnarþingmanna sem segjast hafa náð miklum árangri fyrir litlar og meðalstórar útgerðir þá langar mig til þess að segja tvennt: Í fyrsta lagi hefur meiri hlutinn gert hlægilega litlar breytingar á málinu og það einungis út af þeim göllum sem okkur hér í stjórnarandstöðunni tókst að sýna fram á. Og í öðru lagi þá velti ég fyrir mér hvort sömu hv. þingmenn séu hreinlega með banana í eyrunum því að það hefur ekki farið mikið fyrir þökkum frá þessum sömu litlu og meðalstóru aðilunum og sjávarútvegssveitarfélögum í þeirra garð.