veiðigjald.
Virðulegi forseti. Mig langar hér að lesa upp þau sveitarfélög sem sitja í Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga: Akranesbær, Akureyrarkaupstaður, Bolungarvíkurkaupstaður, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Fjarðabyggð, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Ísafjarðarbær, Langanesbyggð, Múlaþing, Norðurþing, Suðurnesjabær, Snæfellsbær, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Sveitarfélagið Stykkishólmur, Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagaströnd, Sveitarfélagið Ölfus, Vestmannaeyjabær, Vesturbyggð og Vopnafjarðarhreppur.
Þessi sveitarfélög mynda Samtök sjávarútvegssveitarfélaga sem á mánudaginn 7. júlí óskuðu eftir meira samtali. Ég spyr því hér: Verður það í boði? Verður núna áfram haldið því samtali sem menn telja að hafi verið svo óskaplega gott?