156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:09]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hv. þm. Jónína Brynjólfsdóttir kom inn á það hvers vegna við erum búin að standa hérna í 160 klukkutíma og benda á þær hættur sem fylgja þessu frumvarpi. Það er ástæðan fyrir því að við stóðum hér í 160 klukkutíma. Það var ekki bara vegna þess að okkur þótti það svo gaman, langt í frá. Nei, það var ekki þannig. Núna getum við sagt, því miður: Ábyrgðin er ykkar. Við vorum búin að segja ykkur þetta. Við skulum bara vona að þær áhyggjur sem ég hef af þessu máli séu ekki á rökum reistar. En því miður óttast ég það að ég hafi rétt fyrir mér.