156. löggjafarþing — 86. fundur, 11. júlí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Forseti. Við búum í lýðræðisríki og í dag var lýðræðið tekið úr sambandi af því að þessi ríkisstjórn gat ekki sætt sig við það að hún hefði ekki fengið einræðisvald og tók sér það vald sem engin önnur ríkisstjórn hefur tekið sér í yfir 60 ár. Til hvers? Til að afgreiða galið og virkilega gallað skattafrumvarp.