veiðigjald.
Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál sem hefur fengið gríðarlega umfjöllun í þinglegri meðferð, fyrst við 1. umræðu sem var mjög góð. Við tókum virkan þátt í þeirri umræðu og áttum hér orðaskipti sem leiddu alls konar sjónarmið í ljós. Málið fór síðan inn í atvinnuveganefnd þar sem ég sit. Þar komu hátt í 50 gestir fyrir nefndina, ábyggilega hátt á annað hundrað manns sem komu og töluðu við okkur í nefndinni. Þar hlustuðum við líka og komum með okkar breytingartillögur. Nú er málið statt þar að við ætlum að greiða atkvæði um hvort málið fari til 3. umræðu. Við erum ekki komin lengra með þinglega meðferð. En mér finnst mikilvægt að það sé sagt hér að hin þinglega meðferð, hún virkar. Við stöndum vörð um hana. Við hlustum eftir sjónarmiðum og við gerum breytingar ef okkur finnst það vera málefnalegt og mikilvægt.