156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:17]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þingleg meðferð, hvað er það? Það er m.a. að fara yfir mál í hv. þingnefndum. Talandi um fordæmalausa hluti þá man ég ekki eftir því, og er nú búinn að vera hérna í einhvern tíma, að það þurfi að slást fyrir því hér í þingsal að fá Skattinn, sem er helsti sérfræðingurinn, inn á fund nefndarinnar. Það hefur komið fram að Byggðastofnun er ekki búin að koma fyrir fund nefndarinnar — Byggðastofnun.

Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin hefur skrökvað um afleiðingar þessa máls, er að keyra þetta í gegn af þeirri einu ástæðu að hún er með skoðanakönnun sem sýnir að þetta geti verið vinsælt. Þannig er sú ríkisstjórn sem við erum með hér í dag. Það er gríðarlega mikilvægt, virðulegi forseti, að verja almenning gagnvart þessari stórhættulegu ríkisstjórn.