veiðigjald.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra talar hér um samstöðu og um virðingu. Er það samstaða um að hunsa sveitarfélögin í landinu og athugasemdir þeirra og áhyggjur. Er það samstaða um það að hunsa áhyggjur af einum af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar sem staðið hefur með okkur hérna í gegnum súrt og sætt? Er það samstaða um það að hunsa áhyggjur atvinnulífsins í heild sinni? Hér koma stjórnarþingmenn og tala ítrekað um að þetta sé búið að fá mikla og góða umræðu og sé vel unnið mál, mikil og góð umræða og vel unnið mál, það kemur endalaust. Samt eru Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, einstaka sveitarfélög, nýsköpunarfyrirtækin og frumkvöðlarnir og atvinnulífið í heild sinni að lýsa yfir áhyggjum sínum af því að það hafi ekkert verið komið til móts við þessar athugasemdir, ekki neitt. Ekki neitt. Það er vissulega búið að leiðrétta rangar forsendur í frumvarpinu og hækka gjaldið og þessi litla hækkun á afslættinum dugar ekki nema fyrir helmingnum af þessari hækkun. (Forseti hringir.) Þetta er bara rangt sem þið haldið fram hérna. Og að tala svo um (Forseti hringir.) virðingu, ég sé enga virðingu í málflutningi hæstv. ráðherra undanfarna daga og hann er ekki eftir þeim hafandi.