veiðigjald.
Virðulegur forseti. Já, það er verið að ræða hérna þinglega meðferð og hér koma stjórnarliðar upp og segja að ekkert mál hafi verið rætt eins mikið í þinginu og þetta mál. Það vitum við og það er ástæða fyrir því. Ástæðan er sú að þinglega meðferðin sem á að eiga sér stað innan viðeigandi nefndar, í þessu tilviki atvinnuveganefndar, hefur ekki verið sem skyldi og það hefur ekki verið hlustað á athugasemdir sem skyldi. Það er það sem málið snýst um.
Svo er líka vísað til þess að þetta snúist allt um það að þjóðin eigi heimtingu á því að fá eðlilegan arð af þessari auðlind, snýst allt um það. Í upphafi er þetta einmitt sett fram þannig í einhverjum popúlisma, að þarna sé verið að ganga til stórútgerðarinnar og að þar séu breiðu bökin sem geti vel látið meira til samfélagsins. Það er ekki verið að horfa á atvinnulífið í heild. Það er ekki verið að hlusta á samfélögin um land allt, hátt í 30 samfélög (Forseti hringir.) sem hafa lýst yfir miklum efasemdum, miklum áhyggjum og hafa þessar áhyggjur. Þess vegna höfum við staðið hérna, staðið hér til að standa vörð um að enduróma áhyggjur (Forseti hringir.) sem koma frá þessum samfélögum. Og gert er endalaust og enn þá lítið úr því þótt búið sé að fara í þessa aðgerð á þessum dapurlega degi (Forseti hringir.) í Alþingissögunni.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að ræða um atkvæðagreiðslu er ein mínúta. Enn bíða allnokkrir þingmenn eftir því að komast í pontu.)