veiðigjald.
Frú forseti. Hér við atkvæðagreiðslu um málið koma fáeinir hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans upp, fyrst og fremst til að minna á að þeir þekki hvorki innihald né áhrif þessa máls. Hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir segir að þeir sem séu á móti því séu að verja stórútgerðina. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson segir að þetta snúist um að fá meiri tekjur til þjóðarinnar af sjávarútvegi. Það hefur komið fram í vinnslu þessa máls og verið bent á það af fjölmörgum aðilum að þetta mun draga úr tekjum þjóðarinnar af sjávarauðlindinni. Það hefur líka komið fram að þetta mun helst gagnast stærri útgerðinni í þeim skilningi að hún ein ræður við þetta og mun þá væntanlega fá meiri kvóta á næstu árum þegar minni sjávarútvegsfyrirtækin loka með þeim áhrifum sem það mun hafa á þeirra samfélög og selja kvótann til þeirra stærri sem hafa mesta hagkvæmni til að ráða við þessa nýju skattlagningu.
Hér hefur öllu verið snúið á hvolf í þessari umræðu um þetta skattamál hæstv. forsætisráðherra sem á að setja öll þingstörf út þetta kjörtímabil og jafnvel lengur í uppnám til að klára í júlí.