veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil leggja til að það verði gert hlé á þessari atkvæðagreiðslu og eftir atvikum hún endurtekin til þess að rétt verði staðið að. Hér liggur fyrir það sem kallast, með leyfi forseta, nefndarálit með tillögu til rökstuddrar dagskrár. Út á hvað gengur sú rökstudda dagskrá? Í niðurlagi segir, með leyfi forseta:
„Með vísan til þess sem að framan er ritað samþykkir Alþingi að vísa málinu frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá.“
Þar sem þetta er eina málið á dagskrá þá yrði þessum fundi lokið. Ég óska eftir því að forseti taki þetta til skoðunar hið snarasta. Það blasir við að þessa tillögu hefði átt að afgreiða og ræða áður en til þeirrar atkvæðagreiðslu kemur sem nú stendur umræða um í þessari pontu. Ég óska eftir því að forseti upplýsi um afstöðu sína til þessa en legg til að það verði gert hlé á þessari atkvæðagreiðslu hið snarasta.