veiðigjald.
Virðulegur forseti. Þessi furðuuppákoma sem fór fram rétt áðan sýnir kannski í hversu miklum skotgröfum og hversu miklum rugli þingleg meðferð þessa máls er. Hér stendur ekki steinn yfir steini í afgreiðslu hæstv. forseta á þeim tillögum sem liggja fyrir og í grundvallarreglum um fundarsköp. En mig langar hins vegar að nefna það, af því að hér hafa hv. þingmenn stjórnarflokkanna komið upp og talið mikla þinglega meðferð hafa farið fram í þessu máli og hæstv. forsætisráðherra kom hér og hreykti sér af því að málið hefði tekið breytingum, sem hún telur mjög miklar, til að mæta umsagnaraðilum, að það er rétt að hafa það í huga að þessar breytingar voru lagðar hér fram eftir að þingi hefði átt að vera lokið samkvæmt starfsáætlun hæstv. ríkisstjórnar, eftir þann tíma. Og þessar breytingar eru ekki hæstv. ríkisstjórn að þakka heldur nákvæmlega stjórnarandstöðu hér sem hefur dregið fram þá megingalla, miklu galla sem liggja (Forseti hringir.) í þessu máli og er nauðsynlegt að þingleg meðferð fái að laga í friði áður en málið verður afgreitt hérna á þinginu. Um það hafa (Forseti hringir.) þessi ræðuhöld snúist hér undanfarnar vikur.