veiðigjald.
Virðulegur forseti. Mér þykir svolítið með ólíkindum umræðan hérna, að vera að tala um kjarnorkusprengjur og þykir það bara mjög ósmekklegt. En hér hafa hv. þingmenn minni hlutans talað um að breytingar á þessu frumvarpi hafi orðið að þeirra forlagi. Það finnst mér líka alveg með ólíkindum og segi nú eins og sagt er stundum: Allir vildu Lilju kveðið hafa. Menn nota það þegar þeir vilja eigna sér einhverja góða hluti. Það var skáldið Eysteinn Ásgrímsson á 14. öld sem orti kvæðið Lilju sem öll skáld vildu eigna sér. En mér finnst það vera ansi miður ef stjórnarandstaðan ætlar síðan að eigna sér þessar góðu breytingar á þessu frumvarpi sem voru gerðar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og skipta miklu máli fyrir landsbyggðina. Hv. þingmenn hefðu mátt sýna meiri samningsvilja við að vinna með okkur í atvinnuveganefnd að þessum góðu breytingum en það er bara gott ef það verður gert í framhaldinu.