156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:36]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég verð að koma hérna upp og ræða þessa þinglegu meðferð. Að sjálfsögðu á þjóðin að fá sanngjarna rentu af sjávarútvegsauðlindinni. Hver hefur verið að segja annað? Að sjálfsögðu á hún að fá það. Ég held að það séu flestir sammála um það. Framsókn er alla vega sammála um það. Spurningin er hvernig. Það liggur bara fyrir í umsögnunum, í ræðum þingmanna að við höfum áhyggjur af því að það verði frekari samþjöppun, jafnvel fækkun í greininni. Ekkert áhrifamat hefur farið fram varðandi sveitarfélögin og á endanum þá fær þjóðin minna úr sjávarútvegsauðlindinni. Varla var það uppleggið. En það er eitt, það er einn kostur, að núna getum við gert áhrifamatið. Núna getum við fengið Byggðastofnun. Núna getum við fengið svör við því sem við erum búin að vera að kalla eftir í þingsal og ég fagna því og vonast til þess að nefndin taki það til greina.