156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er hægt að tala um margt þegar kemur að því hversu óskynsamlegt það er að afgreiða þetta mál eins og hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera. En ég ætla að lesa hér, með leyfi forseta, upp úr áliti fjármálaráðs á blaðsíðu 7. Þar segir:

„Boðuð álagning auðlindagjalda á ferðamenn á að endurspegla kostnað vegna ágangs og uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum í eigu ríkisins. Breytingar á aflaverðmæti í reiknistofni veiðigjalda mun hækka álögur á íslenskan sjávarútveg verulega. Álagning slíkra gjalda ætti að miða að því að hámarka þjóðhagslegan ábata af nýtingu auðlindarinnar. Útskýra mætti betur í áætluninni hvort og hvernig áformaðar breytingar munu gera það.“

Virðulegi forseti. Allir sem skoða þetta mál komast að þeirri niðurstöðu að menn ættu að byrja að vinna það og leggja það síðan fram. Ég er sammála því og segi já.