156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:45]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Lokaspretturinn á afgreiðslu þessa máls er fyrst og fremst áminning um mikilvægi þess að fallast á þessa tillögu því að það var ekki nóg með að það þyrfti að margítreka beiðnir með takmörkuðum árangri um að þeir sem best þekktu til málsins fengju yfir höfuð að koma fyrir nefndina og ræða það, heldur er nú tilkynnt um að málið skuli rifið út og það gert án nokkurs samráðs. Ég velti fyrir mér, frú forseti, hvort óbilgjarnar árásir á hv. þm. Hildi Sverrisdóttur í gær og gærnótt hafi stafað af því, þrátt fyrir að hv. þingmaður og varaforseti hafi slitið þingfundi á eðlilegum tíma, að árásirnar hafi stafað af því að þetta hafi truflað leikritið sem hæstv. forseti tekur greinilega þátt í og hefur tekið að sér að leiða fyrir hönd hæstv. ríkisstjórnar. Mér þykir borðleggjandi að samþykkja þessa tillögu og varðveita friðinn á Alþingi Íslendinga.