veiðigjald.
Hæstv. forseti. Það er auðvitað ekkert annað í stöðunni en að vísa þessu frumvarpi frá. Þetta er ekki tæk lagasetning. Það er fjöldi umsagna sem bendir á að það er ekki einu sinni víst að þetta standist stjórnarskrá. Við vitum ekki hvernig málið mun enda. En mestar áhyggjur hef ég haft af umsögnum sveitarfélaganna vítt og breitt um landið sem óttast að þetta fari gegn sveitarstjórnarlögum sem ég er sannfærð um að það geri. En hér hefur ekkert verið hlustað á þau sjónarmið. Lögin eiga ekkert að taka gildi strax. Hæstv. ríkisstjórn getur vel komið hér með vel unnið frumvarp í haust sem stenst lög og hækkað skatta á útgerðina um 70–80% eins og þau vilja gjarnan gera. En þetta hér er ekki vönduð lagasetning og það sem Alþingi Íslendinga á að gera þegar slík frumvörp berast inn í þingsal er að vísa þeim til baka til ríkisstjórnarinnar.