156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:48]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég get ekki annað en spurt: Hversu lítil ætlum við að vera sem þjóð, við sem eigum best rekna sjávarútveg í heimi, að ætla með þessu frumvarpi að fara að taka þetta upp hér og bera okkur saman við Noreg og önnur lönd sem standa okkur langt að baki? Hversu lítil ætlum við að vera? Þetta er svo illa unnið mál að það sætir furðu að ríkisstjórn sem vill láta taka sig alvarlega skuli leggja svona hrákasmíð hér á borð fyrir Alþingi. Það er óskiljanlegt að ríkisstjórnin vilji ekki ræða málin betur, vilji ekki ná sátt, hvort sem er hér á Alþingi eða við þjóð sína. Hér vitum við það að það er verið að hunsa hér áhyggjur sjávarútvegssveitarfélaga, hagsmunaaðila. Það er ekkert áhrifamat. Það þarf ekki að fara með þetta mál (Forseti hringir.) með þessum flýti í gegnum þingið. Ég styð þessa tillögu, að málinu verði vísað frá og að ríkisstjórnin komi með málið betur unnið hér aftur í haust.