veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég biðst afsökunar ef ég hef ekki barið nógu fast í borðið. Ég er hingað kominn til þess að styðja við þá tillögu að vísa þessu máli hér til ríkisstjórnarinnar. Það hefur verið mín bjargfasta trú í gegnum alla þessa umræðu að þetta mál væri ekki tækt. Það er mjög gallað þetta frumvarp og á það hefur verið bent, bæði varðandi tölulegan grunn frumvarpsins og síðan hvernig þetta mál hefur verið afgreitt hér í þinginu. Mig langar bara að nefna enn og einu sinni, virðulegur forseti, áhyggjur sveitarfélaganna, 26 sjávarútvegssveitarfélaga, að það sé ekkert áhrifamat í frumvarpinu. Ekkert. Það er með ólíkindum að það sé ekki hlustað á sveitarfélögin í landinu þegar viðkemur þeirra beiðni um það að þetta frumvarp sé metið með hliðsjón af þeirra hagsmunum.