156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:54]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Þetta mál mun enn vera til skoðunar og þá hefði ég talið eðlilegt að hæstv. forseti, fremur en að reyna að kveða upp úrskurð á meðan enn er verið að skoða málið, gerði einfaldlega hlé á fundinum, reyndi örlítið að friðmælast við Alþingi. En þetta er afleiðing af því hvernig á þessu hefur verið haldið þegar farið er af stað með þeim hætti sem hér var gert án þess yfir höfuð að láta vita hvað til stæði. Þvert á móti í rauninni var reynt að fela það, gefa til kynna að enn væri einhver vilji hjá ríkisstjórninni til að leiða mál til lykta með sómasamlegum hætti á meðan verið var að undirbúa það, að láta það koma öllum á óvart að hér ætti skyndilega að beita þessu ákvæði sem ekki hefur verið notað í yfir 60 ár. Og þá gerast svona hlutir. En ég hefði haldið að hæstv. forseti myndi þá vilja reyna að róa ástandið með því að gera hlé til þess að fá a.m.k. rétta niðurstöðu í framkvæmdina.