veiðigjald.
Forseti. Þegar gengið er fram með þeim flumbrugangi sem hér er gert, þó að skipulagið hafi verið býsna gott PR-lega séð, ásýndarlega, tímalínan vel hönnuð, þá verðum við að vanda okkur hér í þessum þingsal. Bara nú í vikunni fengum við í andlitið dóm sem setti meiri háttar virkjunarframkvæmd í óvissu. Það að við séum ekki, að því er virðist, í einhverju yfirgengilegu stressi og flumbrugangi í færum til að raða málum upp með réttum hætti þá held ég að það væri skynsamlegt að taka a.m.k. eitt skref til baka, reyna að stilla röð hluta rétt af þannig að tryggt sé, þannig að við séum ekki — ég var rétt í þessu í einhverjum fundahöldum hérna í hliðarherbergi þegar frávísunartillagan mín er tekin til atkvæðagreiðslu. Það er enginn bragur á þessu.