156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu um að veiðigjaldamálinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur frá 1. minni hluta hv. atvinnuveganefndar, þeim sem hér stendur og hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Þetta snýr að áhrifamati frumvarpsins eins og við þekkjum það. Ég tel að það sem kom fram í máli hv. þm. Eydísar Ásbjörnsdóttur áðan, að þetta væri eitt mest unna áhrifamat og gögn og greiningar í einu frumvarpi sem sést hefur — ég er ósammála því. Það var ekki þannig. Það var reynt hins vegar að afla gagna í meðförum málsins hjá atvinnuveganefnd en það er ekki hægt að segja að það hafi verið ítarlegar greiningar á áhrifum. Það hafa heldur ekki komið fram greiningar, í framhaldi af því að frumvarpið tekur breytingum, á því hvaða áhrif það hefur á sjávarútvegssveitarfélögin. Ég vona að það verði góður stuðningur við tillögu 1. minni hluta.