veiðigjald.
Virðulegur forseti. 1. minni hluti leggur til að vísa málinu aftur til ríkisstjórnar svo hún geti unnið málið betur og komið með það vel unnið hingað inn í þingið, þó ekki væri nema kannski að skýra það hvert væri raunverulegt áhrifamat þessa frumvarps sem hér liggur fyrir. Hæstv. ráðherra Inga Sæland kom hér inn sem starfandi forsætisráðherra og lýsti því yfir að áhrif þessa frumvarps sem við ræðum hér væru þau að sveitarfélögin í landinu fengju milljarða. Það er reyndar ekkert um það í frumvarpinu né í áliti meiri hlutans heldur þvert á móti og allar umsagnirnar sem komu lýsa verulegum áhyggjum.
Virðulegur forseti. Af þessum og svo mörgum öðrum ástæðum er auðvitað bara ástæða fyrir ríkisstjórnina að taka þetta mál í fangið aftur og koma með það almennilega unnið, bjóða þinginu ekki upp á þessa vitleysu.