156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:11]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég er verulega sleginn yfir þeim atburðum sem eru að eiga sér stað hér, bæði í gær og í dag. Það er þungbúið yfir suðvesturhorninu, það er þungbúið í þessum sal. Orðræða valdhafanna síðustu daga og vikur og löngun til þess að stjórna með tilskipunarvaldi minnir okkur á það sem við höfum séð frá valdhöfum vestan hafs og í sumum ríkjum Austur-Evrópu. Að framkvæmdarvaldið hafi tekið yfir Alþingi með forseta Alþingis hér í dag — það er sorgardagur í rúmlega 81 árs sögu lýðveldisins Íslands. Það er augljóst að þetta mál er þannig vaxið að það þarf frekari skoðunar við. Ef ekki er hægt að koma með skynsamlegar mótvægisaðgerðir, sem að mínu mati er alltaf hægt, þá er eina vitið að vísa því aftur til ríkisstjórnar eða frá. Ég segi því já við þessari tillögu.