veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það ber vott um mikinn þvergirðingshátt hæstv. ríkisstjórnar að þiggja ekki þessa tillögu 1. minni hluta hv. atvinnuveganefndar að fá málið aftur til sín til að búa betur um það, ekki kannski svo að það náist sátt um málið einhvern tímann síðar á þessu kjörtímabili eða næsta þingvetri, það kann að vera að það náist ekki sátt um þetta mál, en búa þó þannig um málið að hægt sé að taka upplýsta ákvörðun og ekki bara þingmenn geti gert það heldur að almenningur í landinu geti áttað sig á hvað felst nákvæmlega í þessu þingmáli. Mér er til efs að nokkur þingmaður hér, nema kannski mögulega örfáir, geti útskýrt í stuttu máli út á hvað þessi kerfisbreyting, sem er hér kynnt um skattlagningu í sjávarútvegi, gengur og hvernig hún eigi að virka. Það að hæstv. ríkisstjórn þiggi það ekki að fá málið til sín til að búa betur um það ber vott um þvergirðingshátt.