veiðigjald.
Virðulegi forseti. Það hefur ekkert verið skoðað með þjóðhagslegan ábata af þessum breytingum en aðalatriðið er þetta: Þrátt fyrir að hv. þingmenn sem eru nýmættir á svæðið séu að segja okkur frá því hvernig hlutirnir eru þá hefur það nú margoft gerst og ekki þótt nein frétt að þegar mál koma, sérstaklega þegar þau koma með afbrigðum vegna þess að þau koma of seint, og augljósir gallar eru á þeim þá eru þau send aftur til ríkisstjórnar til að vinna málið betur. Ég tala nú ekki um þau mál sem liggur ekkert á, vegna þess að hæstv. ríkisstjórn gæti náð fram sínum skattahækkunarmarkmiðum þó svo að þau kæmu með þetta næsta haust. Þetta er dimmur dagur í dag. Framkvæmdarvaldið er að taka sér stöðu sem við höfum ekki séð áður og það er valtað yfir Alþingi Íslendinga. Hv. meiri hluti hefur enn tækifæri til að bjarga einhverju (Forseti hringir.) en mér sýnist á töflunni að honum sé ekki viðbjargandi.