veiðigjald.
Frú forseti. Ég studdi frávísun rétt áðan. Þetta er nú aðeins mildari leið en frávísun til að vísa þessu óheillamáli aftur til síns heima til betri vinnu. Það svo sem kemur mér ekki á óvart hvernig taflan lítur út en ég bara ítreka það sem ég hef sagt hér áður að það felst ábyrgð í því að fylgja eftir svona máli. Því miður þá óttast ég það að þær afleiðingar sem af þessu frumvarpi geta orðið verði alvarlegar og þetta eru ekki góð skilaboð til þeirra sem búa á landsbyggðinni sem hafa allt sitt undir sjávarútvegi.