veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég er hingað upp kominn til þess að styðja við þá tillögu sem hér liggur fyrir um að vísa þessu frumvarpi til ríkisstjórnarinnar til betri greiningar og vinnu. Það er alveg ljóst að það eru margir ágallar á þessu frumvarpi. Á þá hefur verið bent og áhrifamatið liggur hreinlega ekki fyrir. Við vitum ekki nákvæmlega hvaða áhrif þetta frumvarp mun hafa, hvorki á byggðarlögin né litlar og meðalstórar útgerðir hringinn í kringum landið. Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að mér finnst þetta kaldar kveðjur til sveitarfélaganna og mér finnst þetta kaldar kveðjur til íbúa á landsbyggðinni sem, eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson sagði hérna áðan, margir hverjir reiða sig alfarið á þessa grunnatvinnugrein okkar Íslendinga, sjávarútveginn.