veiðigjald.
Frú forseti. Lýðveldinu stendur ekki nein ógn af áhrifamati í þessu frumvarpi. Það er eitt af því sem ég geri ráð fyrir að hæstv. ríkisstjórn myndi framkvæma ef málið færi til hennar. Lýðveldinu stendur ekki ógn af því að koma á móts við athugasemdir sem sjávarútvegssveitarfélög hafa sett fram. Lýðveldinu stendur engin ógn af minni hlutanum á þingi. Það er engin ógn við lýðræðið á Íslandi í dag. Hér erum við að kalla eftir því að málinu verði aftur vísað til ríkisstjórnar og það unnið betur, enda gefst ágætistími til þess, virðulegi forseti. Ég held að það væri mikill bragur á því og gott fyrir þingstörfin fram undan að gera það. Það myndi gera það að verkum að fólkið í landinu fengi enn betri upplýsingar um hvað í frumvarpinu býr og yrði Alþingi til heilla. Ég styð tillöguna.