veiðigjald.
Virðulegi forseti. Við erum á þessum stað í dag út af skorti á samstarfsvilja og samskiptahæfni hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur. Það er miður en það er eitthvað sem við höfum fylgst með allt frá því hún tók við Samfylkingunni. Þaðan tók að hrekjast reynslumikið fólk. Skattahækkunarfrumvarp Viðreisnar er illa unnið, bæði af hæstv. ráðherra og af meiri hlutanum í þinginu sem hefur með liðsinni hæstv. forsætisráðherra hindrað vandlega þinglega meðferð sem okkur er skylt að viðhafa. Á þessum stutta tíma hefur ekkert verið hlustað á sveitarfélögin, ekkert verið hlustað á atvinnugreinina sem við höfum verið að tala fyrir. Þess vegna er ég á rauðu í dag gegn þessu frumvarpi.