156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:30]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Mikil er skömm þessarar ríkisstjórnar og það kemur skýrt fram hér þegar við erum að greiða atkvæði um þessa grein. Ég held að fáir hafi áttað sig á því, virðulegi forseti, miðað við flumbruganginn, spunann, leikritið, að aldrei í sögu þingsins hefur forsætisráðherra ávarpað þingið af minna eða ómerkilegra tilefni. Ég held að flestir hafi hugsað: Þetta hlýtur að þurfa að taka gildi strax í sumar. Það bara getur ekki annað verið. Nei, virðulegi forseti, þetta á að taka gildi 1. nóvember. Þetta fólk var tilbúið til þess að beita þessu ofbeldi, kjarnorkuákvæðinu, fyrir ákveðna hagsmuni, sína eigin egósérhagsmuni. Það eru sérhagsmunirnir í þessu máli. En almenningur (Forseti hringir.) og atvinnulífið og sérstaklega lítil og meðalstór fyrirtæki eru fórnarlömbin í þessu egótrippi hæstv. ríkisstjórnar.