156. löggjafarþing — 86. fundur,  11. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:35]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Varðandi fund atvinnuveganefndar sem er boðaður á milli 2. og 3. umræðu eru komnar óskir frá okkur í minni hlutanum sem ég vil kannski koma inn á hér. Þær eru að Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, Byggðastofnun, Skatturinn, KPMG Law og og væntanlega annar góður skattasérfræðingur eða -prófessor, Samkeppniseftirlitið og dr. Ragnar Árnason emerítus komi fyrir nefndina. Það er gríðarlega mikilvægt, eins og kemur fram í áliti 1. minni hluta, út frá dómaframkvæmd og öðru sem tengist dómaframkvæmd Hæstaréttar og Mannréttindadómstóls Evrópu og dómaframkvæmd tengdri því að þetta fái góða meðhöndlun. Það er enn þá hægt að bjarga vonandi einhverju sem snýr að dómaframkvæmd í landinu. En ég vek athygli hv. þingmanna einmitt á því sem kemur fram hjá 1. minni hluta í þessu máli.