156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[10:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Eiríkur Björn Björgvinsson) (V):

Virðulegur forseti. Atvinnuveganefnd Alþingis kom saman til fundar seinni partinn í gær í framhaldi af og að lokinni 2. umræðu um frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingar á lögum um veiðigjald, nr. 148/2018. Nefndin boðaði til fundarins fulltrúa Byggðastofnunar annars vegar og fulltrúar stjórnar sjávarútvegssveitarfélaga hins vegar.

Áhyggjur þessara aðila hafa aðallega snúið að áhrifum frumvarpsins á sjávarútvegssveitarfélög og þá smærri aðila sem starfa í fiskvinnslu og útgerð. Samtalið var mjög gott og var á fundinum m.a. rædd hugsanleg aðkoma Byggðastofnunar að eftirliti með áhrifum frumvarpsins á sjávarútvegssveitarfélög. Fram kom hjá fulltrúum Byggðastofnunar mikil jákvæðni að taka verkefnið að sér. Fulltrúar þeirra lögðu sérstaka áherslu á að skilgreining verkefnisins væri skýr m.a. vegna þess að mjög margar breytur geta haft áhrif á þróun reksturs smærri útgerða sem ekki snerta beint breytingu veiðigjalda. Einnig var lögð sérstök áhersla á mikilvægi þess að tímalína verkefnisins væri skýr og ákveðin fyrir fram.

Fram kom í máli fulltrúa sjávarútvegssveitarfélaga ánægja með að hlustað hafi verið á áhyggjur þeirra, m.a. með fyrri breytingum á frítekjumarki eða svokölluðum afslætti, sem kemur fram í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar, en líka var lögð áhersla á að láta skoða hvort ekki væri hægt að innleiða breytingar í þrepum og að Byggðastofnun yrði fengin til að fylgjast með þróun og áhrifum breytinganna.

Frú forseti. Í framhaldi af þessum fundi og eftir samtöl við fulltrúa Byggðastofnunar og fulltrúar stjórnar sjávarútvegssveitarfélaga þá leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til frekari breytingar á frumvarpinu sem ég ætla að gera stuttlega grein fyrir.

Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til tvíþætt bráðabirgðaákvæði við lögin. Í fyrsta lagi er lögð til breyting sem snýr að því að innleiða ákvæði frumvarpsins í skrefum þannig að tillaga ríkisskattstjóra til ráðherra vegna veiðigjalda fyrir síld, kolmunna, makríl, þorsk og ýsu nemi 85% af fjárhæð veiðigjalds fyrir árið 2026 og 95% fyrir árið 2027. Það tekur að fullu gildi 2028. Telur meiri hlutinn að þessi þrepaskipting sé til þess fallin að draga úr áhyggjum sem hafðar hafa verið uppi um áhrif frumvarpsins á smærri aðila.

Í öðru lagi leggur nefndin til að Byggðastofnun verði falið að meta áhrif frumvarpsins á stöðu sjávarútvegssveitarfélaga sérstaklega og skila til ráðherra skýrslu þar að lútandi fyrir árslok 2027. Þannig komist skýrari mynd á hver áhrif frumvarpsins verða.

Frú forseti. Þessar breytingar og fyrri breytingar meiri hluta atvinnuveganefndar á frumvarpinu sýna að mínu mati að meiri hlutinn er að hlusta á ábendingar umsagnaraðila og byggja breytingarnar m.a. á samtölum við Byggðastofnun og sjávarútvegssveitarfélögin og áherslur þeirra.

Ég legg áherslu á að skýrsla Byggðastofnunar er skýrsla sem mikilvægt er að nýta til hugsanlegrar endurskoðunar. Ég vil því hvetja þingmenn til að greiða atkvæði með samþykkt þessarar breytingartillögu.

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að halda því til haga að frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um veiðigjald er grundvallarkerfisbreyting á því hvernig veiðigjöld eru reiknuð. Það er markmið frumvarpsins að reiknað sé rétt afgjald af sjávarauðlindinni sem við ætlum að skila aftur til þjóðarinnar á þessu kjörtímabili. Við í meiri hluta atvinnuveganefndar erum mjög stolt af þessu frumvarpi. Atvinnuvegaráðherra, ríkisstjórn og fulltrúar meirihlutaflokkanna hér á Alþingi hafa hlustað á málefnaleg sjónarmið sem fram hafa komið um þetta mikilvæga mál og átt fjölda samtala m.a. við kjörna fulltrúa og aðra stjórnendur sveitarfélaga, fulltrúa atvinnulífsins og almenna íbúa. Okkar tillögur að breytingum á frumvarpinu eru settar fram til að gera mjög gott frumvarp enn betra.