veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. framsögumanni nefndarálits meiri hluta atvinnuveganefndar. Mér kemur í huga að fjallið hafi tekið jóðsótt og fæðst lítil mús. En mig langar í ljósi þess sem ekki stendur í breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar að spyrja hv. framsögumann hvað skýrir það að nú liggi fyrir og það hefur verið gengist við því með breytingartillögu eftir fyrra nefndarálit meiri hluta atvinnuveganefndar að verðmatið í makríl er rangt eins og frumvarpið leiðir út með því að leggja þar til 20% afslátt af því mati. Nú liggja fyrir skýrslur Norges Sildeslagslag þar sem er farið í gegnum hverja einustu sölu undanfarin ár og borið saman. Var þetta rætt að einhverju marki innan meiri hluta atvinnuveganefndar að gera breytingu þarna á eða lítur hv. framsögumaður nefndarálits þannig á að 20% aðlögunin sé fullnægjandi, þegar rauntölur draga fram 50–52% verðmun samkvæmt því sem hefur gerst á þessum markaði? Og það er eini markaðurinn í Noregi þannig að það er ekki öðrum til að dreifa samkvæmt skýrslu Norges Sildesalgslag.