156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[10:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Eiríkur Björn Björgvinsson) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir spurninguna. Varðandi það að það sé rangt verð sem fram komi í okkar útreikningum eða í gögnum um makrílinn þá er ég bara algjörlega ósammála því. Það er algjörlega rétt. Þessi afsláttur sem við erum að leggja til hér er einfaldlega til þess að koma til móts við þær óskir sem hafa komið fram um einhvers konar aðlögun á frumvarpinu. Ég vek líka athygli á því að bara nýlega höfum við upplýsingar um það að íslensk skip hafa verið að landa makríl í Færeyjum þar sem verðið sé mun hærra heldur en er hér á Íslandi. Þannig að ég vek athygli á því að verð sem við sjáum á mörkuðum í kringum okkur er einfaldlega það sem við ættum að horfa líka til og ættum að byggja okkar tölur á. En ég hnykki á þessu: Þessi afsláttur sem við erum að leggja til hér er afsláttur af veiðigjaldinu í heild sinni og er ekkert viðurkenning á því að þetta sé rangt verð.