156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[10:16]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir svarið og að vera heiðarlegur í svari sínu því að nær allar umsagnir við þetta frumvarp eru neikvæðar, nær allar. Hér kemur einnig fram að það sé erfitt að greina bein áhrif frumvarpsins á ákvarðanir á rekstrarlegum grundvelli sem fyrirtæki kunna að taka á grundvelli breytts reiknistofns samkvæmt frumvarpinu. Svo kemur einnig fram að nefndin hafi fjallað ítarlega um málið á síðustu vikum og telur meiri hlutinn málið vera vel upplýst. Ég deili ekki þeirri skoðun með meiri hluta nefndarinnar að þetta mál sé vel upplýst. Einnig telur meiri hlutinn að málið sé vel upplýst gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum sömuleiðis. Hér á að setja endurskoðunarákvæði og nefnd á vegum Byggðastofnunar. Hvernig í ósköpunum ætla stjórnvöld að meta áhrifin? Hvernig á það að vera hægt? Hvaða rugl er það að halda að hægt sé að bregðast við með einhverjum mótvægisaðgerðum þegar afleiðingar þessa frumvarps eru komnar fram?

Svo langar mig líka að spyrja um það sem segir hér:

„Er það mat meiri hlutans að sanngjarnt og réttlátt gjald af nýtingu sameiginlegra auðlinda sé ein grundvallarforsenda þess að búa ríkinu úrræði og slagkraft til að bregðast við þeim áskorunum sem hagræðing fyrirtækja kann að leiða af sér, m.a. fyrir sjávarútvegsbyggðir …“

Það er mikið talað um gjaldtöku hér af hálfu ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Það er búið að slá ryki í augu fólks í þessu landi, að þetta gjald eigi að búa til nýja vegi, nýjar brýr, bæta hafnir, (Forseti hringir.) bæta heilbrigðiskerfið og núna á líka að bæta sveitarfélögunum eða koma með mótvægisaðgerðir. Hefur framsögumaður málsins í alvöru trú á þessu?

(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á ræðutímann sem er tvær mínútur.)