minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Virðulegur forseti. Enn eru þingstörfin hér undir algjöru verkleysi. Hér hefur þingmönnum verið haldið inni í þinghúsi síðan klukkan tíu í morgun án þess að nokkuð bóli á lokum þessa þingfundar og svo virðist sem hér hlaupi menn um hauslausir hver um annan þveran. Ég tek undir hins vegar ábendingu hv. þm. Bergþórs Ólasonar varðandi þá frétt sem er núna í fjölmiðlum, um að Flokkur fólksins hafi verið að undirbúa beitingu 71. gr. þingskapalaga frá því í byrjun maí. Svo bítur höfuðið af skömminni hv. þm. Sigurjón Þórðarson með yfirlýsingum í fréttum í dag um að þingmenn skuli bara hafa sig hæga vegna þess að það komi til greina að fara að beita þessari grein aftur hér í þessum þingsal. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Ég geri verulegar athugasemdir við málflutning hv. þingmanna stjórnarflokkanna.