156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þessi ríkisstjórn virðist algjörlega vanfær um að skipuleggja eða stjórna nokkrum sköpuðum hlut. Hæstv. forsætisráðherra tókst ekki að semja um þinglok og var sá fyrsti um margra áratuga skeið. Beitti svo kjarnorkuúrræðinu svokallaða en tekst samt ekki að klára þingið. Þetta er með stökustu ólíkindum, frú forseti. Ég held að það sé rétt að leita lausna. Ég ætla að leggja það til að hæstv. ríkisstjórn leiti eftir utanþingsforsætisráðherra. Þetta er mikil vinstri stjórn eins og við höfum þegar séð og fyrir liggur að Katrín Jakobsdóttir er mjög vinstri sinnuð. Hún hefur reynslu og ég tel að hún sé laus í hlutverkið ef svo ber undir. Hæstv. núverandi forsætisráðherra getur þá snúið sér að (Forseti hringir.) fjármálaráðuneytinu og hækkað alla þar mögulega skatta og fengið í staðinn einhvern forsætisráðherra sem hefur einhvern sans fyrir störfum Alþingis.