minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Frú forseti. Nú er það svo að það er einfaldlega okkar ágæti hæstv. forseti sem beitir 71. gr. þingskapalaga en ekki Flokkur fólksins. En þessi umræða hér og hvernig hún fer af stað hér í upphafi fundar sýnir að það er enginn vilji hjá stjórnarandstöðunni. Það hlé sem var hér á fundum var til þess að ná fram samningum við stjórnarandstöðuna. Samningsviljinn er núll. Það er enginn vilji. Menn koma hér upp og eru að búa til úlfalda úr mýflugu út af einhverju minnisblaði sem er beðið um í maí og það er gert hér að aðalatriði um miðjan júlí. Það sjá allir hvaða leikur er hér í gangi. Þessi ágæta stjórnarandstaða, háttvirt, er í rauninni ekki — það er enginn vilji til samninga. Ég held að þá (Forseti hringir.) sé eðlilegt að spyrja sig: Er þá ekki rétt að íhuga að beita umræddri grein á ný (Forseti hringir.) með svo ágætum árangri og gerðist hér í gær? (Gripið fram í: Þetta er með ólíkindum, með ólíkindum.)
(Forseti (KÁB): Forseti biður um hljóð í salnum og vill auk þess minna á ræðutímann og að virða hann.)