156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:08]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Nú liggur fyrir þegar kemur að veiðigjaldafrumvarpinu að það var ekki vel unnið í nefnd. Það var ekki tekið tillit, það tók mikinn tíma til að mynda að fá Skattinn. Þetta hefur allt komið fram. Það þurfti þess vegna mun meiri umræðu hér í þingsal heldur en það hefði þurft. Hvað gerðum við ráð fyrir að myndi gerast? Jú, í haust myndi fólk mögulega læra af þessu, vinna málin betur í nefnd og koma svo með þau tilbúin inn í þingsal. En núna þegar hæstv. forseti beitti kjarnorkuákvæðinu í gær og hún í fjölmiðlum og hv. þm. Sigurjón Þórðarson hafa uppi hótanir um að við skulum haga okkur annars geti það gerst aftur, þá spyr ég: Hvernig heldur forseti að þetta muni verða hér í haust ef fólk getur ekki einu sinni treyst því að í nefndum sé fólk að vinna faglega?