156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:09]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Maður er löngu hættur að skilja hvernig verkstjórnin er hér í þessu húsi og hver það er sem fer með verkstjórnina, ef það er nokkur. Hér er beitt kjarnorkuákvæði sem var búið að vera greinilega í undirbúningi að nýta í töluverðan tíma sem er búið að hafa áhrif á öll önnur þingstörf. Hv. meiri hluti setti öll önnur mál í uppnám til þess að geta nýtt þetta kjarnorkuákvæði sem er búið að vera undirbúið eins og minnisblaðið sýnir og búið að skapa alla þessa orðræðu og rugl hér í þingsalnum. Ég spyr, virðulegur forseti: Ber virðulegur forseti ábyrgð á þeim ummælum sem hæstv. ráðherrar hafa látið falla hér í þessari pontu og hafa ekki verið ávíttir fyrir enn þá? Ætlar hæstv. ríkisstjórn og virðulegur forseti að standa við þessi ummæli eða ætlar að forseti að ávíta hæstv. ráðherra fyrir þessa orðræðu?