156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:11]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það stefnir í enn einn hörmungardaginn hér á Alþingi sem er ekki til sóma fyrir okkur Íslendinga. Mér brá að sjá fréttir af því í ríkisfjölmiðlinum í gær að ríkisstjórnin hefði óskað eftir minnisblaði frá skrifstofu Alþingis og fengið það í hendur 7. maí, um hvernig mætti þagga niður í umræðu hér í þessum sal. Það er alveg ljóst að það var ekki beðið um þetta minnisblað 7. maí. Umræða hófst í þessum sal 5. maí og ríkisstjórnin fékk minnisblaðið í hendurnar 7. maí. Ég óska eftir svari við því frá hæstv. forsætisráðherra: Hvenær var óskað eftir þessu minnisblaði? Af hvaða tilefni? (Forseti hringir.) Það liggur alveg í hlutarins eðli, eins og sú leikflétta stjórnarflokkanna sem teiknaðist upp í gær, (Forseti hringir.) að það hefur aldrei verið snefill af samningsvilja hjá þessari ríkisstjórn.

(Forseti (KÁB): Forseti minnir enn á ræðutímann. Hann er ein mínúta undir þessum lið.)