156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:15]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er dapurlegt að verða áfram vitni að vinnubrögðum meiri hlutans hér á Alþingi. Mig langar til að taka undir orð kollega minna, hv. þingmanna sem hafa óskað eftir svörum um aðdragandann að þessu minnisblaði. Við í stjórnarandstöðunni höfum verið að taka þátt í, að því er við teljum, mikilvægri umræðu hér á Alþingi um mál sem skiptir okkur máli, risastórt mál sem varðar kerfisbreytingu, til að halda uppi sjónarmiðum þeirra sem m.a. fengu ekki aðgang að nefndastörfum á Alþingi, til þess eins að komast af því að þetta hafi hér allt verið mögulega sett á svið, eða hvað? Við þurfum auðvitað að fá svar við þessu. Ég, eins og fleiri, undra mig auðvitað á ummælum formanns hv. atvinnuveganefndar og óska sömuleiðis eftir skýringum á þeim. (Forseti hringir.) Ég átta mig á því að viðkomandi hv. þingmaður hefur tekið sér ýmislegt vald hér í þinginu en það væri ágætt að hann kæmi hér og svaraði fyrir þessi orð.