minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Forseti. Þetta er náttúrlega að verða ótrúlegt leikrit í kringum þetta mál, eitthvað sem við höfum aldrei séð, held ég, og ég held að þetta verði mjög fróðlegt þegar þetta verður skoðað síðar meir. Og það nýjasta frá hæstv. Íslandsmálaráðherra, Sigurjóni Þórðarsyni, þessi ummæli hér sem eru á Vísi: Vonar að minni hlutinn sýni ábyrgð svo að ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur. Ég bara vona að þingmenn átti sig á þessari orðræðu sem er síðan búin að vera hérna dögum saman með ótrúlega dramatískum hætti m.a. núna síðustu — já og hvað þá með fimmtudagsmorguninn. Orrustan um Ísland. Baráttan um Ísland. Við þekkjum þetta. Þetta er ótrúlegt. — Endilega flissaðu, frú utanríkisráðherra.
Ég hef beðið og mun óska eftir, og ég held að það sé eðlilegt, að forseti kanni nú þá tímalínu hvenær óskin frá Flokki fólksins kom til rannsóknarþjónustu þingsins um að safna upplýsingum (Forseti hringir.) um 71. gr. og hvernig væri hægt að nota hana. Það hlýtur að vera (Forseti hringir.) að rannsóknarþjónusta þingsins, ég skil það þannig, hafi fengið þessa beiðni. Það hljóta að vera (Forseti hringir.) einhverjar verkbeiðnir og tímasetningar um það hvernig staðið var að málinu.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að ávarpa hv. þingmenn sem hv. þingmenn og ráðherra sem hæstv. ráðherra.)