minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Virðulegur forseti. Þetta er allt að verða hið mesta „skuespil“ hér. Það er alveg augljóst af fréttum gærdagsins að þegar Flokkur fólksins er farinn að biðja um minnisblöð um hvernig eigi að beita kjarnorkuákvæðinu áður en 1. umræða um veiðigjöldin hefst þá er farin að teiknast hér upp ákveðin mynd. Ég held að það liggi algjörlega hreint fyrir, miðað við þau orð sem hafa verið látin falla um valdarán og fleira, að það er búin að teiknast hér upp ákveðin mynd. Og það er algjörlega á hreinu að það stóð aldrei til að semja í þessu máli. Það stóð aldrei til að ljúka hér þingi eins og hefur verið gert síðastliðin 66 ár.