156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:21]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég heyri að hér er ákveðið tilfinningalegt uppnám í gangi. En ég vil þó beina þeim orðum til þingmanna minni hlutans að hér koma upp stórir menn með stór orð og ætla að hafa vitið fyrir hæstv. forsætisráðherra. Hér höfum við gríðarlega öflugan forsætisráðherra sem hefur leitt hér með góðum brag ríkisstjórn, leitt hér samningaviðræður á móti minni hluta sem hefur það markmið að hleypa engu máli í gegn nema þau fái að ráða hvað verður gert í veiðigjaldafrumvarpinu. Með þessum aðferðum koma þau í veg fyrir að önnur mál komist til afgreiðslu, m.a. varðandi strandveiðar, varðandi samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og önnur góð mál. Þetta er það sem blasir við hér á þingi. Í dag hafa staðið yfir viðræður milli meiri og minni hlutans um að hleypa dagsetningarmálum í gegn og hvaða það taki langan tíma að hleypa þeim í gegn og það er ekki hægt að fallast á það. Hér á áfram að stöðva öll mál. Þetta er ekki lýðræðislegt, frú forseti.