156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:23]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Enn og aftur koma þingmenn hér upp og gera því skóna að beiðni starfsmanna þingflokks Flokks fólksins sé helsta ástæða þess að hér var sett Íslandsmet í málþófi. Hér var þinginu haldið í gíslingu. Mikil eru áhrif og völd starfsmanna þingflokks Flokks fólksins. Mikil eru áhrif þeirra og völd þegar hér voru haldnar tæplega 3.500 ræður og stjórnarandstaðan vill ekki klára þinglokasamninga. Það er merkilegt að hlusta á formann Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, tala um að það sé sögulegt að forsætisráðherra sé ekki að ná þinglokasamningum. Það er líka sögulegt að stjórnarandstaðan komi í veg fyrir að hér náist þinglokasamningar. Það er fordæmalaust, algerlega fordæmalaust.