156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:24]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við höfum orðið vitni að sögulegum atburðum síðustu dægrin, að hér sé verið að beita ákvæði sem er sjaldan beitt, þ.e. að stöðva umræðu hér á þinginu. Hv. þingmenn stjórnarliðsins eru strax farnir að tala um það hér og í fjölmiðlum að þessu verði beitt aftur. Ég vil einungis benda á ábyrgð okkar þingmanna, sem er mikil, og hæstv. forsætisráðherra og hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni, það er mikil ábyrgð að tala með þessum hætti. Það er ekki ljóst hvernig þetta endar ef menn halda áfram á þessari leið. Ef þetta gæti orðið hér einhvers konar daglegur viðburður, að þessu yrði beitt, þá erum við komin, frú forseti, út í eitthvað sem heitir valdarán eða eitthvað slíkt, eins og hæstv. ráðherrar hafa orðað það (Forseti hringir.) með mjög gáleysislegum hætti hér í gær og í fyrradag. Þá erum við komin þangað. Ég tek undir orð (Forseti hringir.) hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að ég held að hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, (Forseti hringir.) ætti hugsanlega að leita sér leiðbeininga og aðstoðar hvað varðar samningatækni og þá er gott að nefna nafn Katrínar Jakobsdóttur sem tókst þetta í sjö ár, oft í erfiðum málum.

(Forseti (KÁB): Forseti vill enn og aftur minna hv. þingmenn á, og að sjálfsögðu hæstv. ráðherra, að fundartíminn undir þessum lið er ein mínúta en ekki ein og hálf mínúta.)