156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:26]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég myndi gjarnan vilja að þau samtöl sem hafa verið í gangi í dag af fullum vilja haldi áfram. Það er raunverulegur vilji til að ljúka þessu þingi og gera það í samkomulagi og ég fann að það var kominn ríkur vilji í það samtal. Það er oft þannig þegar fólk er kannski á lokametrunum að þá eru þeir metrar erfiðastir. Við höfum fyrst og fremst lagt áherslu á dagsetningarmál eins og sakir standa og áttum okkur alveg á því að á þessum tímapunkti hlýtur það að vera forgangsatriði. Ég vil bara segja hér inni: Setjumst niður saman, tökum samtalið í dag. Það ríkir fullur vilji af hálfu meiri hlutans til að klára það samtal.