minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Frú forseti. Ég vil aðeins bregðast við orðum hæstv. forsætisráðherra í fyrra skiptið sem ráðherra kom hér í fundarstjórn. Það að halda því fram að stjórnarandstaðan hafi hafnað því að neitt gerðist í þinginu öðruvísi en svo að tillaga þeirra, sem sagt stjórnarandstöðunnar, yrði niðurstaða veiðigjaldamálsins, er rangt, bara svo það sé sagt. Það er rangt. Tillaga okkar í stjórnarandstöðunni er frávísun, að málið gangi til ríkisstjórnarinnar og komi hér aftur til vinnslu í haust. Það hefur ekkert verið rætt um það undanfarið. Það er krafa stjórnarandstöðunnar en við náum henni ekki fram. Það liggur fyrir. Það er rangt að halda því fram að hér hafi verið uppi kröfur stjórnarandstöðunnar sem voru þannig búnar að án þess að þeim yrði mætt að fullu yrði ekkert afgreitt hér í þinginu. Ég vil bara að það liggi fyrir.