156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:29]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Enn verður maður ringlaðri í því hver heldur um taumana í þessum þingsal. Það fylgir því ábyrgð að fara með völdin, hæstv. forsætisráðherra, það fylgir því ábyrgð. Dagskrárvaldið er algerlega hjá meiri hlutanum, hjá hæstv. forseta Alþingis, þar er dagskrárvaldið. Af hverju setur þá forseti ekki þau mál á dagskrá sem ríkisstjórnin hefur viljað hafa? Jú, út af því að mál sem fyrir löngu var vitað að vantaði alla þinglega meðferð er alltaf sett á dagskrá til þess að þau geti talað um Íslandsmetið. Það er hluti af leikritinu, að geta talað um Íslandsmetið. Á meðan setja þau mál til hliðar sem virðulegir gestir okkar eru að bíða eftir. Það var ákvörðun ríkisstjórnarinnar að setja þau ekki (Forseti hringir.) hér á dagskrá. Það var ekki ákvörðun okkar. Svo koma þau aldrei hingað með efnislega umræðu, bara með einhverja frasa. (Forseti hringir.) Þau verða að fara að vita ábyrgð sína, hæstv. forsætisráðherra.